Um mig

Ég er landsbyggðartútta á 25. aldursári. Þar sem ég bjó (bý núna nálægt höfuðborgarsvæðinu) voru flestir krakkar í íþróttum og ég var sko engin undantekning. Hreyfði mig mjög mikið og var nánast í öllum íþróttagreinum. Svo skall langa kennaraverkfallið á árið 1996 að mig minnir og við tóku langar vökunætur yfir videoglápi og tilheyrandi sælgætisáti og sukkeríi. Kílóin byrjuðu að hlaðast á mann. Svo eltist maður og fór að missa áhugan á þessum endalausu íþróttum og við tók djamm og áhugi á hinu kyninu. Hreyfingin var nú ekki í hámarki þessi ár! Ég hef s.s nánast alla tíð verið nokkrum kílóum of þung og síðustu fjögur árin hef ég bætt meira á mig en góðu hófi gegnir. Ég átti yndislega stelpu seint á haustdögum 2007 og bætti um 8 kílóum auka (fyrir utan meðgönguþyngdina) á mig á meðgöngunni eins og svo margar og það eru bara of mörg kíló í viðbót við hin sem voru.

Áður hef ég reynt við danska kúrin og gekk vel í nokkrar vikur. Það var árið 2005. Gafst upp og ákvað ég að ég gæti vel gert þetta án hjálpartækja (bara afsökun til að komast í óhollustuna) og hef ekkert gert í mínum málum síðan. 12. febrúar s.l ákvað ég ásamt mömmu minni að skella mér á DDV fund og byrja að axla ábyrgð á mínum aukakílóum og vanlíðan sem að sjálfsögðu fylgir svona óhófssemi í mataræði. Núna þegar ég á barn þá er ég mun meðvitaðari um að ég verði að vera góð fyrirmynd fyrir dóttir mína. Ég get ekki ætlast til að hún velji sér heilsusamt líferni ef að ég kenni henni ekki hvernig maður á temja sér það!

En þriðjudaginn 12. febrúar steig ég á vigtina hjá henni Sigurbjörgu í Garðabænum og vó ég 95,7 kg. Er ekki enn búin að gera mér neitt markmið en ég býst við að ég hugsi fyrst um sinn að komast undir 90 kílóin og þar næst 85 kílóin. Raunhæf markmið hugsa ég og ætla að gefa mér 6 vikur að komast undir 90 kílóin og aðrar sex fyrir 85 kílóin. En ég gef mér ekki lengri tíma en ár að komast í kjörþyngd sem ætti að vera 73 kg.

Rita ummæli