Markmiðin mín
Er með eitt stórt lokamarkmið sem ég ÆTLA að ná fyrir 3. september 2008. 25 kíló skulu fjúka fyrir þann tíma.
- 15. mars- 5 kg. Gallapils
- 15. apríl- 10 kg. Nýja boli
- 26. maí- 16 kg. Diesel gallabuxur sem verða keyptar í Orlando:)
- 15. júní- 18 kg. Geri ekki ráð fyrir miklu átaki í Flórída en ætla að gera mitt allra besta! Þarf að vera raunsæ hérna svo að ég brjóti mig ekki niður ef ég næ þessu ekki!
- 15. júlí- 21 kg. Ný föt í ræktina
- 15. ágúst- 25 kg. Verðlaunin verða klárlega góð en er ekki viss um hvað mig langar í þessa stundina.
Eins og þið sjáið þá eru þetta allt föt. En mig vantar mjög mikið föt núna en ætla ekki að kaupa neitt fyrr en ég fer að sjá árangur! Á allt annað sem mig langar í svo að ég veit ekki hvað ég ætti að setja sem verðlaun annað en þetta:o) Er að fara til Flórída í vor og þá skal ég vera þokkalega ánægð með sjálfa mig!