Archive for 1

Ups and downs

Jæja. Ég er búin að vera í sukkinu. Spáið í það hvað við erum mörg miklir matarfíklar. Mér finnst þetta samt svo neikvætt orð og líður illa að hugsa um mig sem slíkan. Sé fyrir mér einhvern akfeitan McDonalds Ameríkana, sveittan með rytjulegt hár. En ég neita því ekki að ég er matarfíkill, alls ekki.

Við vinkonurnar ætlum að skella okkur í ræktina í fyrramálið. Komin tími til. Stelpan orðin 4 mánaða svo að ég er fullfær um að byrja góða hreyfingu en á að passa magann því ég fór í bráðakeisara (jah, keisari er alltaf keisari, hvernig sem hann er framkvæmdur)! Hlakka bara til að byrja að hreyfa mig almennilega. Tvö ár síðan ég var í góðu formi svo að það er kannski ekki lengi að gerast hjá mér:o)

Fór ekki í vigtun í síðustu viku. Ekki spyrja afhverju. Hugurinn seldi mér allskyns afsakanir og ráð til að komast í sukkið. Bannsettur hugur!

Hvernig gengur ykkur? Er ekki búin að taka rúntin því að ég hef hreinlega ekki verið neitt í tölvunni síðustu daga! Ætla að taka rúnt í kvöld þegar að stelpan er sofnuð og kæró verður í vinnunni;) Einhverntíman hefði ég hugsað “YES, þá get ég sukkað í friði” but no more!!

Ummæli (7)

Gott að eiga góða að

Ég komst ekki í gírinn í dag:( En jæja, gott að eiga góða vini og svo ég tali nú ekki um mömmu:o)

Vinkona mín komst að því að ég er á danska í gegnum DDV spjallið. Ekki það að ég sé að fela það að ég sé á danska, heldur erum við bara í litlu sambandi. Hún var ekki lengi að setja sig í samband við mig og bað mig um að veita sér stuðning og öfugt! Hún þarf reyndar bara að missa fá kíló en engu að síður þarf hún stuðning. Jæja, fékk duglegt spark í afturendan og við ætlum saman í vigtun í vikunni. Mamma er líka búin að detta aðeins út af sporinu og ætlar að hunskast á fætur aftur og saman komum við tvíefldar í þetta:o) Hef aldrei verið svona ákveðin stelpur!! Alltaf bara fallið í sama farið og ekki staðið upp aftur!

Endilega haldið áfram að kommenta, hvetur mig svo áfram að vita af ykkur þarna:)

Ummæli (3)

Jahá!

Núna er ég búin að vera í sukkinu. Jah, kannski ekki alveg tapa mér… en ég hef ekkert einbeitt mér að danska síðan á fimmtudaginn! Þessu verður breytt hið snarasta! Ég er ótrúleg! En munið.. ég get, skal og ætla!!

Ummæli (1)