Jæja. Ég er búin að vera í sukkinu. Spáið í það hvað við erum mörg miklir matarfíklar. Mér finnst þetta samt svo neikvætt orð og líður illa að hugsa um mig sem slíkan. Sé fyrir mér einhvern akfeitan McDonalds Ameríkana, sveittan með rytjulegt hár. En ég neita því ekki að ég er matarfíkill, alls ekki.
Við vinkonurnar ætlum að skella okkur í ræktina í fyrramálið. Komin tími til. Stelpan orðin 4 mánaða svo að ég er fullfær um að byrja góða hreyfingu en á að passa magann því ég fór í bráðakeisara (jah, keisari er alltaf keisari, hvernig sem hann er framkvæmdur)! Hlakka bara til að byrja að hreyfa mig almennilega. Tvö ár síðan ég var í góðu formi svo að það er kannski ekki lengi að gerast hjá mér:o)
Fór ekki í vigtun í síðustu viku. Ekki spyrja afhverju. Hugurinn seldi mér allskyns afsakanir og ráð til að komast í sukkið. Bannsettur hugur!
Hvernig gengur ykkur? Er ekki búin að taka rúntin því að ég hef hreinlega ekki verið neitt í tölvunni síðustu daga! Ætla að taka rúnt í kvöld þegar að stelpan er sofnuð og kæró verður í vinnunni;) Einhverntíman hefði ég hugsað “YES, þá get ég sukkað í friði” but no more!!
Heiða sagði
Áður en ég byrjaði í danska var ég sömu hugleiðingum, þ.e. alltaf að leita að tíma þar sem ég væri ein til þess að ég gæti nú gúffað í mig að vild. Þegar ég byrjaði svo á danska fór mikil orka í það til að byrja með að venja hausinn af þessum hugsunum og eins finna aðrar leiðir til að hafa það huggulegt (af því það besta (í raun versta) sem ég gat hugsað mér var að ná í dvd, fullt af nammi og svo aðeins meira nammi). En þetta kemur!
Betra að fá vínber í stað bland í poka og vatn með klaka með. Gott á bragðið og laust við samviskubit
Rakel sagði
Já það er oft ekki auðvelt að umgangast mat, þetta er eflaust ævilangt ferli sem maður er kominn í og mikilbægt að vera meðvitaður um þetta
Líst vel á ræktina, er einmitt að koma mér af stað, bara gaman.
Rakel sagði
Vantaði þig spark? hér er eitt *spark*
Gangi þér vel
Dídí sagði
Ég faldi aldrei sukkið mitt, át bara án samviskubits.
Veit ekki hvort það er eitthvað betra!
Júníbolla sagði
Já felusukkið er klassískt – það er ekki spurning!
)
Ég fór sjálf frekar illa útúr fæðingunni minni og tel niður dagana þar til skvísan verður 3 mánaða en þá má ég fara að skvetta úr klaufunum og reyna aðeins meira á mig en ég læt mér nægja mömmujóga þangað til og nýt þess bara að knúsa krílið.
Góða vigtun í vikunni
mjona sagði
Æjj skvís..það er svo erfitt fyrir svo marga að hætta í sukkinu kannast því miður mjög vel við þetta. eina skiptið sem mér hefur liðið æðislega og laus við matarpúkan var þegar ég var á danska í sumar/haust af heilum hug án svindls svo byrjaði maður að svindla. Gangi þér alveg rosalega vel. …..þú getur þetta alveg….fyrstu 7 dagarnir eru verstir…taka bara einn dag í einu ég ætla að gera það
Rakel sagði
hvernig gengur svo?