Ég komst ekki í gírinn í dag:( En jæja, gott að eiga góða vini og svo ég tali nú ekki um mömmu:o)
Vinkona mín komst að því að ég er á danska í gegnum DDV spjallið. Ekki það að ég sé að fela það að ég sé á danska, heldur erum við bara í litlu sambandi. Hún var ekki lengi að setja sig í samband við mig og bað mig um að veita sér stuðning og öfugt! Hún þarf reyndar bara að missa fá kíló en engu að síður þarf hún stuðning. Jæja, fékk duglegt spark í afturendan og við ætlum saman í vigtun í vikunni. Mamma er líka búin að detta aðeins út af sporinu og ætlar að hunskast á fætur aftur og saman komum við tvíefldar í þetta:o) Hef aldrei verið svona ákveðin stelpur!! Alltaf bara fallið í sama farið og ekki staðið upp aftur!
Endilega haldið áfram að kommenta, hvetur mig svo áfram að vita af ykkur þarna:)
Mjónan sagði
það er svo gott að hafa einhvern með sér í þessu, veitir stuðning og gerir það skemmtilegra:)
gangi þér vel, fylgist með
Snæja sagði
Flott hjá þér
Þið verðið algjörar gellur í sumar
Heiða sagði
Hæhæ! Fann síðuna þína út frá annarri
Held alveg örugglega það sérst þú sem hefur verið að kommenta á síðuna mína undir “vinkonan” en skildir aldrei eftir slóðina á bloggið þitt
Fékk að henda link á þig.
Alltaf gaman að fylgjast með öðrum á DDV. Gangi þér þrusuvel