Mig langar sko EKKERT að skrifa hvernig mér hefur gengið í dag:( Skipulagði daginn ekkert og fór í höfuðborgina í sukk. Fékk mér Jolla í Hafnarfirðinum og borðaði ekkert grænmeti með hádegismatnum. En að öllu venjulegu hefði ég bara gefið skít í restina af deginum en ákvað að gera það ekki og hélt ótrauð áfram eins og ég hefði ekki borðað þennan bannsetta Jolla. Ferlega svekkt en læt þetta ekki buga mig því ég ÆTLA að standa mig!!
Þarf örugglega að plana bara alltaf hvern dag fyrir sig svo að ég fari ekki í einhverja vitleysu og þá sérstaklega þegar ég fer e-ð út í lengri tíma! Ohhh mig vantar pepp!
Snæja sagði
Flott hjá þér að hafa ekki gefið skít í restina af deginum
Nú veistu bara hvað þú þarft að gera til að halda þér góðri – skipulag
Ég veit að það eru einhverjar sem að gera vikuplön og versla inn eftir þeim, en mér finnst betra að ákveða bara alltaf kvöldið áður hvað ég ætla að borða yfir daginn.
Þú getur þetta sko alveg, ert alla vega komin aftur á beinu brautina þrátt fyrir smá hliðarspor!
Mjónan sagði
æji erfiðir svona dagar, átti einn þannig í gær. Alveg sammála, þetta er bara glatað ef maður skipuleggur sig ekki. Gangi þér vel!