Jæja. Fór í vigtunina í dag og komst að því að ég er búin að missa 800 gr.! Flott það. Er að reyna að selja mér þá hugmynd að ég hefði kannski verið búin að missa meira ef að Rósa frænka væri ekki í heimsókn;)
Annars góður dagur og alveg 100% danskur! Gengur rosalega vel. Er líka orðin miklu glaðlyndari, sem sýnir mér hvað sykurinn og óhollustan gerir mann þungan í skapinu!
Snæja sagði
Til hamingju með léttinginn!!
)
Úff já sykurinn, þegar að ég byrja að breyta mataræðinu fæ ég dúndrandi hausverk í 1-2 daga, svo líður manni svo miku betur!
MjónaN sagði
til hamingju:) já úff hann fer alveg með mann sykurinn ojoj
Dídí sagði
800 grömm er flott og þú mátt sko alveg gæla við þá hugmynd að Rósa hafi eitthvað tafið, hún hefur áhrif hjá okkur flestum ef ekki öllum.
Gangi þér vel!
Rakel sagði
Til lukku með léttinginn
rósa er sko ekkert skemmtileg
Gangi þér vel