Dagur fjögur og fimm

Jæja. Vigtun á morgun. Reyndar bara fimm dagar á milli vigtana í þetta skiptið. Fór á miðvikudaginn í Garðabæinn en ætla annars að fara í vigtanirnar hérna! Búin að standa mig mjög vel þó að ég hafi klikkað á grænmetinu í hádeginu í dag og kvöldmaturinn í gær var ekki vigtaður. Hef passað mjög mikið upp á hvað ég læt ofan í mig!

Enn ekki búin að mæla mig. Þegar ég ætlaði að mæla mig í gær þá komst ég að því að ég á ekki málband;) Þvílíka húsmóðirin! Kæró er líka loksins heima hjá okkur til að taka myndir!

Keypti mér sætuefni, ddv ís, ddv kanilsnúða og hnetur í dag. Ætla að fá mér e-ð gott eftir á því ég á mjólkurskammt og ávaxtaskammt eftir:)

3 Ummæli »

  1. Rakel sagði

    Alltaf gaman að gera sér eitthvað gott í eftirrétt :)
    Gangi þér vel á vigtinni :)

  2. Mjónan sagði

    Gangi þér vel á vigtinni ;) Hljómar vel, namm namm ætla að sjá hvort ég finni ekki svona DDV vörur:) fínt að eiga kanelsnúða og eitthvað hihi

  3. vinkonan sagði

    Já og ísinn er ótrúlega góður líka:o)!!

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Rita ummæli