Átti frekar erfitt gærkvöld. Var alveg að missa mig í sykurlöngun. En ég stóð mig eins og hetja þó ég segi sjálf frá. Notaði bara æðruleysið á þetta og fékk mér svo þrjá hálsbrjóstsykurmola svona til að seðja mestu löngunina.
Annars er ég að fara að borða hádegismat. Er að spá í að fá mér bara skyrdrykk því að ég á eiginlega ekkert gott til að borða. Búin með eggjaskammtin og ég á ekkert almennilegt brauð svo að flatkaka verður að duga í þetta skiptið. Þyrfti að skipuleggja matarinnkaupin MIKLU betur! Svo vantar mig þessi helstu hjálpartæki eins og kakó, undanrennuduft, essensa, sætuefni og svo framvegis… þarf að fjárfesta í þessu við tækifæri:)
Vinkonan kveður úr rokrassgatinu
Snæja sagði
Úff já ég kannast við þessi kvöld hehe.. Annars bjargar PepsiMaxið og ávextirnir mér oftast
Dídí sagði
Tyggjó gerir kraftaverk fyrir mig þegar ég er svona.
En velkomin annars í hópinn, alltaf gaman að fá ný andlit.
Ég vona að það sé í lagi að ég linki á þig.
Mjónan sagði
Já alveg sammála, fór og fjárfesti í dag í einhverjum alveg nauðsynlegum hlutum
Sammála með tyggjó, til mörg sykurlaus en samt svo bragðgóð tyggjó, næstum eins og nammi:)
Gangi þér vel og góða helgi
vinkonan sagði
Úff.. ég er ekki mikil tyggjókona;) En ég kannski þarf bara að byrja á að verða þannig;)