Dagur þrjú

Dagurinn í dag var góður. Ég gleymdi samt 100 gr. af grænmeti með kvöldmatnum svo að ég verð að maula þau fyrir nóttina til að bæta þetta upp;) Kærastinn sagðist dauðvorkenna mér að lifa á þessu fangafæði. En ég upplifi þetta svo engan vegin svona. Ég lít svo á að þegar ég næ mér á strik í mataræðinu og sykurlöngunin horfin þá á ég eftir að finna mikið frelsi og stórkostlega líðan. Er svo innilega ekki í neinni sjálfsvorkun eins og svo margir detta í. Kannski það komi einhverntíman en ég verð að fókusa á það að ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig og engan annan! Kærastinn er samt mjög dyggur stuðningsmaður og hvetur mig áfram. Það er líka gott að hafa mömmu á hinni línunni og spjalla við hana um DDV lífið og baráttuna.

Úff. Verð að muna eftir þessum málum á eftir og taka myndina. Það hefur bara ekki gefist færi á því í dag, því ekki get ég gert þetta sjálf!

1 ummæli »

  1. Snæja sagði

    Var að sjá kommentið þitt eftir að ég kommentaði á þig áðan :) En já ég fékk að linka í þig líka :)

    kv,
    Snæja

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Rita ummæli