Ég er komin í danska umhverfið aftur. Held að það séu þrjú ár síðan ég skráði mig fyrst og var í nokkrar vikur og náði fínum árangri. Nú þremur árum og einni meðgöngu síðan er ég 22 kílóum of þung- miðað við 1.73 – 1 meter! Er reyndar tiltölulega nýbúin að eiga, en stelpan er þriggja og hálfs mánaða og ég er enn með hana á brjósti. Á meðgöngunni sá ég fyrir mér að kílóin myndu hrynja af mér á meðan brjóstagjöfin væri í svona góðum gír. En nei! Ég borða líka svo ótrúlega óhollan mat (ekki nógu gott fyrir stelpuna heldur) að það er ekki furða að ég nái ekki þessum 10 kg. auka af mér sem ég bætti á mig á meðgöngunni! Nú skulu þau fá að fjúka.
Byrjaði nú bara í gær. Gekk rosalega vel- þar til að ég fór í saumaklúbbinn. Fattaði ekki að taka eitthvað með mér. Þvílíkar kræsingar á borðunum og auðvitað féll ég kylliflöt. Gerði líka mikil mistök með því að segja ekki stelpunum frá því að ég væri byrjuð á danska. Þær hefðu pottþétt kvatt mig áfram og “bannað” mér að fara að veisluborðinu. Spurning um að forðast svona átveislur fyrstu vikurnar!
Note to self! Muna að taka “fyrir-eftir myndir” og mæla ummál í kvöld. Set tölurnar inn á morgun!
Mjónan sagði
Gangi þér rosa vel. Saumaklúbbar eru annsi hættulegir! Veit ekki hvort ég treysti mér á næstunni, annars er nú reyndar önnur hver manneskja á DDV svo að kannski verður bara DDV vænt fæði í saumaklúbbum hér eftir:)
Ég er einmitt líka með eina litla, 6 mánaða. Þessi kíló fjúka af okkur:) krossa putta allavega;)
Mjónan sagði
gleymdi að setja linkinn;)
Snæja sagði
Hæhæ! Já ég hef ekki ennþá farið í afmæli eða neitt svoleiðis á danska, en það gæti verið sniðugt að taka með sér DDV kanelsnúða eða muffins, eða vínber.. nammm Ég er aðeins byrjuð að prófa mig áfram í að gera jógúrt shake og svona.. Namm ég elska danska hehe..
kv,
Snæja