Archive for febrúar, 2008

Gott að eiga góða að

Ég komst ekki í gírinn í dag:( En jæja, gott að eiga góða vini og svo ég tali nú ekki um mömmu:o)

Vinkona mín komst að því að ég er á danska í gegnum DDV spjallið. Ekki það að ég sé að fela það að ég sé á danska, heldur erum við bara í litlu sambandi. Hún var ekki lengi að setja sig í samband við mig og bað mig um að veita sér stuðning og öfugt! Hún þarf reyndar bara að missa fá kíló en engu að síður þarf hún stuðning. Jæja, fékk duglegt spark í afturendan og við ætlum saman í vigtun í vikunni. Mamma er líka búin að detta aðeins út af sporinu og ætlar að hunskast á fætur aftur og saman komum við tvíefldar í þetta:o) Hef aldrei verið svona ákveðin stelpur!! Alltaf bara fallið í sama farið og ekki staðið upp aftur!

Endilega haldið áfram að kommenta, hvetur mig svo áfram að vita af ykkur þarna:)

Ummæli (3)

Jahá!

Núna er ég búin að vera í sukkinu. Jah, kannski ekki alveg tapa mér… en ég hef ekkert einbeitt mér að danska síðan á fimmtudaginn! Þessu verður breytt hið snarasta! Ég er ótrúleg! En munið.. ég get, skal og ætla!!

Ummæli (1)

Dagur nr. 8

Ég er bjartsýn. Það er svo rosalega mikið gott búið að gerast og er að gerast í lífi mínu undan farin, jah, 2 ár eða svo. Ég veit vel að ég get þetta núna. Klárað þetta og orðið fit for life;)

Ekki það að ég er svo sem ekkert að tapa mér í löngun yfir því að missa aukakílóin því ég er ekkert þannig feit. Mig langar bara svo að stunda það sem ég hef áhuga á og þar á meðal er skokk. Mér finnst svo gaman að skokka en þar sem ég er að sjálfsögðu með þessi aukakíló þá er það barasta ekkert gaman. Mig langar líka svo mikið að losna undan þessari matarfíkn. Munið þið þarna í þar síðasta pistli þá talaði ég um hvað mér leið rosalega vel þegar ég borðaði ekki óhollt í næstum viku. Já, mér leið MJÖG vel. Ég var mun léttari í skapinu og líkamanum leið vel. Svo í gær þegar ég borðaði þarna bévítans Jollan þá fann ég hvernig líkaminn byrjaði að mótmæla eftir smástund og ég fékk smá höfuðverk. Get ímyndað mér að líkaminn hafi áður bara verið svona vanur vanlíðaninni að ég tók bara ekkert eftir því!!

En ég ætla að kaupa mér kort í ræktina í mars. Fyrst um sinn verður það bara hlaupabrettið og crosstrainerinn. Það verður líka svo gott fyrir mig að komast aðeins að heiman án stelpunnar. Kæró ætlar að passa upp á að vera heima amk þrjá morgna svo ég komist! Hvernig færi ég að án hans stuðnings??:)

Ummæli (2)

Buhu

Mig langar sko EKKERT að skrifa hvernig mér hefur gengið í dag:( Skipulagði daginn ekkert og fór í höfuðborgina í sukk. Fékk mér Jolla í Hafnarfirðinum og borðaði ekkert grænmeti með hádegismatnum. En að öllu venjulegu hefði ég bara gefið skít í restina af deginum en ákvað að gera það ekki og hélt ótrauð áfram eins og ég hefði ekki borðað þennan bannsetta Jolla. Ferlega svekkt en læt þetta ekki buga mig því ég ÆTLA að standa mig!!

Þarf örugglega að plana bara alltaf hvern dag fyrir sig svo að ég fari ekki í einhverja vitleysu og þá sérstaklega þegar ég fer e-ð út í lengri tíma! Ohhh mig vantar pepp!

Ummæli (2)

Dagur nr. 6 og vigtun

Jæja. Fór í vigtunina í dag og komst að því að ég er búin að missa 800 gr.! Flott það. Er að reyna að selja mér þá hugmynd að ég hefði kannski verið búin að missa meira ef að Rósa frænka væri ekki í heimsókn;)

Annars góður dagur og alveg 100% danskur! Gengur rosalega vel. Er líka orðin miklu glaðlyndari, sem sýnir mér hvað sykurinn og óhollustan gerir mann þungan í skapinu!

Ummæli (4)

Dagur fjögur og fimm

Jæja. Vigtun á morgun. Reyndar bara fimm dagar á milli vigtana í þetta skiptið. Fór á miðvikudaginn í Garðabæinn en ætla annars að fara í vigtanirnar hérna! Búin að standa mig mjög vel þó að ég hafi klikkað á grænmetinu í hádeginu í dag og kvöldmaturinn í gær var ekki vigtaður. Hef passað mjög mikið upp á hvað ég læt ofan í mig!

Enn ekki búin að mæla mig. Þegar ég ætlaði að mæla mig í gær þá komst ég að því að ég á ekki málband;) Þvílíka húsmóðirin! Kæró er líka loksins heima hjá okkur til að taka myndir!

Keypti mér sætuefni, ddv ís, ddv kanilsnúða og hnetur í dag. Ætla að fá mér e-ð gott eftir á því ég á mjólkurskammt og ávaxtaskammt eftir:)

Ummæli (3)

Erfitt kvöld…

Átti frekar erfitt gærkvöld. Var alveg að missa mig í sykurlöngun. En ég stóð mig eins og hetja þó ég segi sjálf frá. Notaði bara æðruleysið á þetta og fékk mér svo þrjá hálsbrjóstsykurmola svona til að seðja mestu löngunina.

Annars er ég að fara að borða hádegismat. Er að spá í að fá mér bara skyrdrykk því að ég á eiginlega ekkert gott til að borða. Búin með eggjaskammtin og ég á ekkert almennilegt brauð svo að flatkaka verður að duga í þetta skiptið. Þyrfti að skipuleggja matarinnkaupin MIKLU betur! Svo vantar mig þessi helstu hjálpartæki eins og kakó, undanrennuduft, essensa, sætuefni og svo framvegis… þarf að fjárfesta í þessu við tækifæri:)

Vinkonan kveður úr rokrassgatinu

Ummæli (4)

Dagur þrjú

Dagurinn í dag var góður. Ég gleymdi samt 100 gr. af grænmeti með kvöldmatnum svo að ég verð að maula þau fyrir nóttina til að bæta þetta upp;) Kærastinn sagðist dauðvorkenna mér að lifa á þessu fangafæði. En ég upplifi þetta svo engan vegin svona. Ég lít svo á að þegar ég næ mér á strik í mataræðinu og sykurlöngunin horfin þá á ég eftir að finna mikið frelsi og stórkostlega líðan. Er svo innilega ekki í neinni sjálfsvorkun eins og svo margir detta í. Kannski það komi einhverntíman en ég verð að fókusa á það að ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig og engan annan! Kærastinn er samt mjög dyggur stuðningsmaður og hvetur mig áfram. Það er líka gott að hafa mömmu á hinni línunni og spjalla við hana um DDV lífið og baráttuna.

Úff. Verð að muna eftir þessum málum á eftir og taka myndina. Það hefur bara ekki gefist færi á því í dag, því ekki get ég gert þetta sjálf!

Ummæli (1)

Fyrsti og annar dagur

Ég er komin í danska umhverfið aftur. Held að það séu þrjú ár síðan ég skráði mig fyrst og var í nokkrar vikur og náði fínum árangri. Nú þremur árum og einni meðgöngu síðan er ég 22 kílóum of þung- miðað við 1.73 – 1 meter! Er reyndar tiltölulega nýbúin að eiga, en stelpan er þriggja og hálfs mánaða og ég er enn með hana á brjósti. Á meðgöngunni sá ég fyrir mér að kílóin myndu hrynja af mér á meðan brjóstagjöfin væri í svona góðum gír. En nei! Ég borða líka svo ótrúlega óhollan mat (ekki nógu gott fyrir stelpuna heldur) að það er ekki furða að ég nái ekki þessum 10 kg. auka af mér sem ég bætti á mig á meðgöngunni! Nú skulu þau fá að fjúka.

Byrjaði nú bara í gær. Gekk rosalega vel- þar til að ég fór í saumaklúbbinn. Fattaði ekki að taka eitthvað með mér. Þvílíkar kræsingar á borðunum og auðvitað féll ég kylliflöt. Gerði líka mikil mistök með því að segja ekki stelpunum frá því að ég væri byrjuð á danska. Þær hefðu pottþétt kvatt mig áfram og “bannað” mér að fara að veisluborðinu. Spurning um að forðast svona átveislur fyrstu vikurnar!

Note to self! Muna að taka “fyrir-eftir myndir” og mæla ummál í kvöld. Set tölurnar inn á morgun!

Ummæli (3)